Blómabörnin
Aðalfólkið..!:Þ
27.02.2009 13:00:08 / bloma

FNM

Faith no more eru að koma saman aftur, svalt? huh 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 08:29:46 / bloma

Helstu fréttir af mér

Jæja þá er vist komin timi á að ég bloggi (RAGGI)     

Jams ég eyddi öllu sumrinu i gæsluvarðhaldi a

Litla hrauni, eg hafði það svo sem fínt þar allan

Daginn barað spila póker og hanga i tölvuni, sem

Eg tók af eikkverjum gæja þarna
Svo losnaði eg heavy óvænt og for beint uppá
hlaðgerðarkot var þar i 2vikur, datt i það i viku og

Fór svo aftur uppá hlaðgerðarkot og var í 9vikur

Það var geðveikt góður tími sem ég sé alls ekki eftir

En svo útskrifaðist ég, og ég var eingan vegin tilbúin

Því 2tímum eftir að ég útskrifaðist datt ég allveg svakalega

Í það.. ég var á hörkukeyrslu i svona 2vikur þá reddaði

Löggan mér plássi á vogi, svaf fyrstu dagana nátla eiginlega

ekkert búin að sofa, svo á 4degi er mér hent útaf vogi (í dag)

af eikkverri nýrri kjellingu :klikk:þó ég væri birjaður í prógraminu...

svo fékk ég tíu mánaðardóm sem er mjög vel sloppið miða við

að eg var með tíu mánuði á skilorðinu mínu, svo .þegar ég

var settur í gæslu var ég með nítján mál á mér, svo voru þrettán

mál feld niður en bara dæmdur fyrir 2 mál og slapp með tíu

mánuði, ég fer í afplánun ábyggilega í næstu viku er svo eftir

þetta rugl eftir hlaðgerðarkot,fékk ég nokkur ný mál í kerfið

þannig eg fæ ekki helming bara tvo þriðju. Búin með 3 þannig

þetta eru svona 3mánuðir og eikkað smá meira sem eg þarfað

sitja inni.... svona eretta neyslulíf.... en nóg um það steinunn

unnustan mín er í bandaríkjunum í meðferð.. ég get ekki beðið

eftir því að hitta hana aftur ;) ég bý bara hjá vinum meðan ég

bíðeftir að fara inn, það verður ömurlegt að sitja inni um jólin

en svona er lífið,,, lífið er dans á rósum en stundum stígur maður

á þyrna það var geggjað að verá hlaðgerðarkoti það var svo mikill

kærleikur þar þannig ef eikkver erað spá í að fara í meðferð

mæli ég með þessum stað , og þó ég hafi ekki orðið edru

eftir meðferðina þá þýðir það ekki að hún virki ekki heldur

það var eikkað sem eg varað klikka á......

 

p.s. steinunn ef þú lest þetta þá vill eg bara sega við þig að eg elska þig

 

p.s. sorry mamma og pabbi að eg skuli alltaf bregðast ykkur.....

 

p.s.ELVAR farðu að blogga 

Stay so fresh and so clean 


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 07:09:53 / bloma

Guð Rokkar....

image001.gif

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 21:16:44 / bloma

Þreyta, stuð, smashing pumpkins

Blómablómablóma, var að koma frá danmörku það var hellað, skil ekki hversvegna kettlingum eins og honum ragga sé hent inn á litla hraun, hm. Farðu að koma með eitthvað fresh blogg drengur :D

Elvar


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 11:18:57 / bloma

Aðal fkn blómabarnið á litla hrauni.....

jæja þá er nú búið að henda kallinum inná litla hraun.. fínt að vera hér 5 STJÖRNU fkn hótel... , ég plöggaði mér á netið hér ,snild .... þannig komið endilega með komment á mig ... p.s. við steinunn erum trúlofuð!!!! :D .. p.s. og endilega kíkjið með nammi til mín ... peace....... kv.raggi#.1

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 01:35:14 / bloma

Blómabarn

Það er ég, hvernig,afhverju? Ég er blómabarn einfaldlega afþví að ég er ég og ég geri það sem ég geri, gott eða vont þá erru það gjörðir mínar. Þið eruð líka blómabörn, þú sem ferð í kirkju á sunnudögum og miðvikudögum, þú sem nauðgar litlum stelpum, þið eruð líka blómabörn. Ég er ekki að segja að allir eru velkomin en allir sem kæra sig um að hugsa aðeins um hvað þeir eru að gera hérna í þessu jarðlífi eru blómaborn, btw þá er ég að hlusta á publiv enemy, gott hip hop. Var að fá slæma frétt áðan, fengið þannig. Þá meina ég þessa slæmu frétt til að láta hjartað í ykkur til að slá hraðar, jamm right here. Ég líka, Bob Dylan - Desolation Row af hoghway 61 revisited núna í gangi. Alltaf einhverjar stelpur að bögga mig, þeim langar í mig. Hvað gerir maður? Fíla þig sem ert að lesa samt, þú verður að fara að gera eitthvað sniðugt, hvort sem það er að stunda sjálfsfróun yfir klámi á netinu, ætla ekki að mæla með síðu, eða fara í göngutúr í fallega veðrinu þá bara já, gerðu eitthvað sniðugt. Við endumst ekki endalaust krakkar, það er bara þannig, fatt? Ekki plata. Je, lifi BLÓMABÖRNIN, alltaf, sama hvað gerist.

Meira seinna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 08:27:20 / bloma

Eitthvað í fréttum ?

Hvað segiði, hress? Jamm gott, jákvæð munið það krakkar. Ég er að hlusta á rólega tónlist, gaman af því. Klukkan er 08:18 hérna. Mánudagur, hvítasunna. Engin vinna semsagt. Týndi myndavél í gær, veit sirka hvar hún er, vonast til að fá hana án þess að þurfa að beita harðri hendi (eins og ég sé fær um það). Var líka skallaður í gær, allt í góðu samt, góður vinur sem gerði það, átti inni hjá mér svona skalla ef þið fattið. Langt síðan ég fór í sund, frekar allavega. Langt síðan að þú fórst eða. Það er fínt, aðeins að spóka sig á stuttbuxum, sýna smá skinn. Hollt víst. Alltaf hollt að sýna sig, jefnvel þótt að maður sé yfir kjörþyng eða eitthvað. Vera ánægður með sjálfan sig. Þessir seinustu og verstu tímar eins og er oft talað um í bókunum sem ég les ekki nóg af hafa bara verið eins og má við búast miðað við hvað ég hef gert til að uppskera það sem ég uppsker, eins og það gengur bara alltaf.

Meira seinna


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 20:23:37 / bloma

Nýtt blómabarn komið í heiminn

Já nú er hátíð í bæ því hún Sara okkar var að eignast lítinn strák. Móður og barni heilsast vel. 10 merkur, svart hár og rosalega fallegur hef ég heyrt. Til hamingju krakkar, þið eigið líf.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 22:10:15 / bloma

Blómabarn #9

Blogg er ekkert annað en fólk sem vill að aðrir lesi um líf sitt frá sínu sjónarhorni sem gerir mann oftar miklu sniðugari, fyndnari, skemmtilegri og úrræðabetri en maður er í raunveruleikanum. Maður segjir aldrei frá sáru, þunglyndu, vonlausu stundunum þar sem manni líður illa eða frá mistökum manns nema þau tengjist fyndum atburð eða hafi "moral point" í lokin. Fáir vilja skrifa um persónuleg mál á bloggi hvort sem maður er glaður eða leiður þá finnst flestum best að lalla í milliveginum, djókinu. Og ja ætli það sé ekki bara gott, bogg snúast víst um það, fólk að egoast um hvað líf þeirra er flott þegar allt er í molum í kringum það. Ég veit það ekki.

Haldiði ykkur jákvæðum, það er best

Megas - Hvell Geiri "Sláið hjartans hörpustrengi"

Mad props til Ragga, þú veist um hvað lífið sníst kallinn. Þangað til næst (verður eitthvað næst)?    -Elvar


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 18:49:53 / bloma

Elvar mættur aftur

Je, ok komin strax aftur, daginn eftir. Sofnaði kl 8 í gær, hell je. Var að koma úr vinnuni, tókst að missa hillu sem við vorum að setja upp svo stórsá á heni, ný komin úr spreijun, dammit. En já ætlaði að segja aðeins meira frá heni Siggu ömmu, mömmu hennar mömmu, fór semsagt um daginn og tékkaði á henni, hún liggur þarna uppí rúmi í herbergi með annarri gamalli konu sem bíður líka eftir því að deyja, sonur hennar var meira að segja hjá henni þarna og var að segja "fyrirgefðu mamma mín að þetta þurfi að vera svona" og eitthvað og hún bara "þetta er allt ílagi gutti minn", heavy gaman.. En já gamla lá semsagt bara þarna meðan ég spurði hana spjörunum úr, hún þekkti mig náttúrulega ekkert fyrst og á tímabili þá datt hún inní að halda að ég væri pabbi minn sem heitir Elvar líka og bað mig að skila hveðju til Björgheiðar skólasystur sinnar sem er semsagt hin amma mín sem dó fyrir svona sex árum :), Já hún er orðin frekar helluð á því hún amma gamla. Allt í einu settist hún svo upp og heimtaði að ég hleypti henni frammúr rúminu sem ég kunni ekki, eikker slá fyrir svo gamla fólkið fari ekki að stinga af ef það fílar þetta batterí ekki. Hjúkka kom og leyfði henni að setjast upp og fór svo en gamla vildi endilega fara að labba um sem er frekar dautt mál fyrir henni því hún er orðin svo völt og vond í höfðinu, en ég hugsaði "Heh what the hell", hálfvorkenndi gömlu og vildi aðeins vera góður og leiddi hana fram á gang þar sem önnur hjúkka kom og sagði við hana að hún mætti ekki fara neitt, ég meina kommon þetta fólk er látið grotna niður og deyja þarna og má ekki labba um og í staðinn fyrir að segja þetta við mig sem bar ábyrgðá þessu þá talaði hún við mig í gegnum ömmu "neinei sigríður mín, þú mátt ekkert fara neitt" þannig að ég sagði við ömmu beint fyrir framan hjúkkuna "hva færðu ekkert að hreyfa þig neitt hérna amma" svona sama taktík, var kannski dáldið bitur en það er leiðinlegt að sjá gömlu liggja bara þarna, það ætti einhver að taka sig til og lauma eitri í djúsinn hennar. Hver veit nema að ég kíkji til hennar á morgun...


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 18:46:32 / bloma

Blogg númer sjö núll fjórtán

Gott kvöld, sit hérna heima hjá Ýrr systur, er að hlusta á hairdresser on fire, busy busy. Heh var að koma úr vinnunni, vorum að bera enda-laust af skókössum inní sentrum búðina þar sem ég vinn, rugl. En já ég er eiginlega bara að "checka" svona inn, engin skrif í gangi. Eins og ég sagði þá lennti e´g í því að skrifa mjööög langt blogg sem svo þurkaðist út. Það var pirringur útaf fyrir sig. Tók mig til og heimsótti ömmu gömlu uppá sjúkrahús á föstudaginn, hún er semsagt orðin 86 eða eitthvað og liggur bara og tjillar og bíður eftir því að deyja. Það var samt svo bittersweet fyndið eitthvað að hún lætur eins og hún sé bara með smá hósta og sé að fara að ná sér og flytja aftur niðrá borgarfjörð þar sem hún bjó, heh:$. En svona er þetta, ég held að við unga fólkið ættum að meta betur að vera ung og falleg. Eeen ég ætla að tékka mig út núna, ætla að skrifa meita um ömmu mína því þetta voru gullnar 50 mínútur sem ég eyddi með henni, skrautleg fjölskylda sem ég á to say the least.

"Wild wild horses could not drag me away", mújah.


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 22:05:48 / bloma

hahahahahaaa

Ég var að enda við að skrifa fokk-hing langt blogg um fólksfluting á íslandi sem þurkaðist svo ALLT út, ég hata tölvur, fokk all of jú.,.. !!!! -Elvar


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 14:55:44 / bloma

Trippin on flow...... PART 3............

yea... Another rainy day..........

 

það er sunnudagur og éger ekki að nenna neinu!

ég fór í gær á grímuball og var engill ;) ég var tilnefndur fyrir besta búninginn en ég beilaði af ballinu... þannig eg vann ekki!,,, en svona er lífið..

Við steinunn fórum út að borða í tilefni mánaðar afmæli :) við fórum á stað sem er kallaður maru sem er "bæ þa way" ótrúlega fínn staður.. það var geðveikt, ég smakkaði súsjí í fyrsta skipti og það var bara fínt :) mæli með að prófa það (fáið ykkur bita sem heitir manhattan) "nice"....................

en þrátt fyrir rigningu og eirðarleysi er ég nú samt ferskur........

 

 

þetta verður bara svona stutt blogg.....

bæ................


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 17:42:31 / bloma

Öskur frá austurlandi

Var kominn með heljarinnar blogg sem þurkaðist út (fokkin fokk!) þannig að ég ætla bara að hafa þetta stutt og laggott.

Keypti nýja deftones áðan, þungur, næstum of þungur fyrir mig. Ég sem ætlaði að vera death metalari forever...hmm.Vinnandi eins og þræll, samt fíla þessa vinnu og fæ vel borgað þannig að þetta er allt gott. Reyniði að taka heilan vinnu/frí dag og hlusta á útvarpið, það er impossible. Hér á egillstöðum náum við bara rás 1 og 2, bylgjunni, fm957 og einhverri gospel rás. Ok, ef þú hlustar á fm í heilan klukkutíma munntu verða fyrir þeirri reynslu að heyra sama lagið spilkað a.m.k. 3svar, og allur þessi hávaði, hröðu trommutaktar og kynningar á milli lagana "ÞETTA ER EFF-EMM, NÍU FIMMSJÖ" eitthvað svo ekki sé minnst á þessar auglýsingar sem er dælt á mann úr öllum áttum, vá. Og maður myndi halda að rás 2 eða bylgjan væri betri en nei, allar þessar auglýsingar og allt ruglið í staðinn fyrir menningarlega umræðu og tónlist, endalaust verið að kynna hinn og þennan, plata vikunar með þessum og þessir komnir að kynna þetta, hringið inn og vinnið kaffi, sheet.

Svo eru það þessir fréttatímar, bannað að veiða hvali, hvóti á 30 fleiri hvali. Mótmæli frá hálfu breta (hei studduð þið ekki fokking íraksstríðið eða hvað, svo megum við ekki veiða hvali sem eru að éta upp allan fiskinn sem verðum víst búinn um 2048 samkvæmt nýrri rannsókn) og allt þetta tal um "hugsanlegar refsiaðgerðir", er þetta orðið innbyggt að maður má ekki veiða hvali og þá er farið að tala um refsiaðgerðir. Stríðsóða mannkyn, ætlum við aldrei að læra að standa saman og þróast í rétta átt? Fyrir allan þennan pening sem við höfum eytt í byssur, sprengjur og annað rusl afhverju gefum við ekki af okkur, þetta lífsgæðakapphlaup er að gera okkur brjáluð, fokk-hing brjáluð. Hvað get ég gert, ég get ekki breytt heiminum, en ég get skotið sjálfan mig....lifið heil og hættið þessum biturleika, þið eruð fokking andandi og með tvo fætur, tvö augu og æxlunarfæri sem virka. Reyniði, það er ekkert að því. Hvar verð ég? Ég verð hér.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2